Tónlistarbúðir MTR – Myndband

Í miðannarvikunni fékk hópur nemenda í Menntaskólanum á Tröllaskaga tækifæri til að æfa sig í að skrifa texta, syngja og rappa.

Katrín Ýr söngkona kom frá London þar sem hún býr og leiðbeindi nemendum. Talsvert var pælt í því hvað fær fólk til að hlusta á tónlist. Nemendur skiptu sér í tvo hópa, stelpur og stráka og skrifaði hvor hópur texta við eitt lag.

Æfður var hópsöngur og þátttakendur settu saman atriði með nemendum í sirkuslistum. Þá voru í áfanganum gerð tónlistarmyndbönd. Hér má sjá eitt þeirra:

 

 

Myndir

 

Af mtr.is