Lögreglan vill koma eftirfarandi atriðum, sem koma fram í reglugerð um smásölu tóbaks, á framfæri til allra er málið varðar:
4. gr.
“Tóbak má hvorki selja né afhenda einstaklingum yngri en 18 ára. Bann þetta skal auglýst með áberandi hætti þar sem tóbak er selt. Leiki vafi á um aldur kaupandans getur sala því aðeins farið fram að hann sýni með skilríkjum fram á að hann sé orðinn 18 ára.
5. gr.
Þeir einir sem orðnir eru 18 ára mega selja tóbak.
Heilbrigðisnefnd á viðkomandi eftirlitssvæði getur veitt tímabundna undanþágu frá þessu ákvæði 1. mgr. um aldurstakmark enda liggi fyrir mat nefndarinnar um að ekki sé unnt að ráða einstakling til starfans sem orðinn er 18 ára.
Slíkar undanþágur skal einungis veita í undantekningartilvikum og aldrei lengur en til sex mánaða í senn. Óheimilt er að veita undanþágu vegna ungmenna yngri en 16 ára.
Umsóknum um undanþágur skulu fylgja upplýsingar um að umsækjandi hafi auglýst eftir starfsmönnum 18 ára eða eldri en engar umsóknir borist eða staðfesting vinnumiðlunar Vinnumálastofnunar á svæðinu um að atvinnuástand á svæðinu sé þannig að erfitt sé að fá starfsmenn 18 ára eða eldri til verslunarstarfa.
Að öðru leyti skal höfð hliðsjón af ákvæðum reglugerðar nr. 426/1999, um vinnu barna og unglinga, vegna vinnu ungmenna undir 18 ára aldri”.
Frétt: Lögreglan á Norðurlandi vestra