Árlega er haldin alþjóðleg tónlistarhátíð á Siglufirði sem hefur það að markmiði að kynna þjóðlagaarf ólíkra þjóða og þjóðarbrota.

Á hátíðinni hefur tónlist fjölmargra þjóða verið kynnt auk þess sem íslensk þjóðlög sitja ætíð í öndvegi.

Þjóðlagahátíðin stendur frá miðvikudegi til sunnudags fyrstu heilu vikuna í júlí ár hvert.

Auk tónleika er boðið upp á námskeið, bæði í tónlist og handverki, gömlu og nýju. Þá er börnum þátttakenda boðið upp á ókeypis námskeið í leiklist og tónlist.

Sjá dagskrá Þjóðlagahátíðar 5.- 9. júlí hér:  https://siglofestival.wpcomstaging.com/