Þorskur undir krydduðum osta- og rasphjúp 

  • um 600 gr. þorskur (eða ýsa)
  • 1 dl. raspur
  • 100 gr. rifinn ostur
  • 1 hvítlauksrif
  • 2 msk. fínhökkuð steinselja
  • salt og pipar
  • smjör

.

 

Hitið ofninn í 150°. Leggið fiskinn í smurt eldfast mót. Saltið og piprið. Blandið raspi, rifnum osti, steinselju og pressuðu hvítlauksrifi saman og setjið yfir fiskinn.

Setjið smjör yfir, annað hvort brætt smjör sem er dreift yfir eða skerið sneiðar (t.d. með ostaskera) og leggið víðs vegar yfir rasphjúpinn. Bakið í um 10 mínútur, hækkið þá hitann í 200° og bakið áfram í 5 mínútur til að rasphjúpurinn fái fallegan lit.

 

.

 

.

 

.

 

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit