Þrettándabrenna og flugeldasýning Kiwanisklúbbsins Skjaldar í samvinnu við Björgunarsveitina Stráka á Siglufirði og 10. bekk grunnskóla Fjallabyggðar verður á Siglufirði sunnudaginn 6. janúar nk.

Blysför verður frá ráðhústorginu kl. 18:00 að brennu. Allir hvattir til að mæta í grímubúningum.

Eftir brennu kl. 19:00-20:30 verður barnaskemmtun Kiwanis (grímuball) á Rauðku.


Mynd: Fjallabyggð