Febrúar var fremur kaldur um land allt segir á vefsíðu Veðurstofu Íslands. Úrkomusamt var á Norður- og Austurlandi. Samgöngur riðluðust margoft vegna óveðurs. Versta veðrið var þ. 14. þegar mikið austanveður gekk yfir landið og bættist í hóp verstu illviðra síðustu ára. Mikið tjón hlaust af veðrinu einkum á Suðurlandi, Suðausturlandi og á Faxaflóasvæðinu þar sem veðrið var einna verst. Loftþrýstingur var óvenju lágur yfir landinu í febrúar.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í febrúar var 0,3 stig og er það -0,1 undir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn -1,5 stig, -0,1 stigi undir meðallagi áranna 1961 til 1990, en -1,6 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn -0,2 stig og 1,1 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöðmeðalhiti °Cvik 1961-1990 °Cröðafvik 2010-2019 °C
Reykjavík0,3-0,160150-1,2
Stykkishólmur-0,10,656175-0,9
Bolungarvík-0,60,449123-1,1
Grímsey-0,30,750147-1,2
Akureyri-1,5-0,172140-1,6
Egilsstaðir-1,80,13566-1,8
Dalatangi1,10,53482-1,1
Teigarhorn0,70,458 til 59148-1,1
Höfn í Hornaf.1,1


-0,9
Stórhöfði1,8-0,262144-1,0
Hveravellir-6,0-0,13156-1,6
Árnes-1,1-0,158141-1,3

Meðalhiti og vik (°C) í febrúar 2020

Febrúar var kaldur og hiti var undir meðallagi síðustu tíu ára á landinu öllu. Neikvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var minnst -0,5 stig á Breiðadalsheiði en mest -2,0 stig í Möðrudal.

Hitavik sjálfvirkra stöðva í febrúar miðað við síðustu tíu ár (2010-2019).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur 2,8 stig í Surtsey en lægstur -7,0 stig í Sátu. Í byggð var meðalhitinn lægstur -4,9 stig í Möðrudal.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 17,0 stig á Kvískerjum þ. 5. Mest frost í mánuðinum mældist -28,1 stig við Mývatn þ. 13.

Úrkoma

Úrkomusamt var á Austur- og Norðurlandi í febrúar á meðan þurrara var á vestari hluta landsins.

Úrkoma í Reykjavík mældist 55,4 mm sem er um 80% af meðalúrkomu áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 82,6 mm sem er nærri tvöfalt meiri úrkoma en að meðallagi 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 46,8 mm og 169,4 mm á Höfn í Hornafirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meira í Reykjavík voru 11, tveimur færri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoma 1,0 mm eða meiri 14 daga mánaðarins, 6 fleiri en í meðalári.

Snjór

Alhvítir dagar í Reykjavík voru 10, tveimur færri en að meðaltali 1971 til 2000. Á Akureyri voru alhvítir dagar 25 sem er 6 dögum fleiri en að meðaltali 1971 til 2000.

Sólskinsstundafjöldi

Í Reykjavík mældust sólskinsstundirnar 50,5 sem er 1,4 stundum færri en í meðallagi í febrúar. Sólskinsstundir voru fáar á Akureyri, 13,2 sem er 23 stundum færri en í meðalári.

Vindur

Vindur á landsvísu var 0,6 m/s yfir meðallagi. Austlægar áttir voru ríkjandi. Mánuðurinn var illviðrasamur og riðluðust samgöngur margoft vegna veðurs. Mikið austanveður gekk yfir landið þ. 14. og bættist í hóp verstu illviðra síðustu ára. Töluvert tjón hlaust af veðrinu einkum á Suðurlandi, Suðausturlandi og á Faxaflóasvæðinu þar sem veðrið var einna verst.

Loftþrýstingur

Loftþrýstingur var óvenju lágur í febrúar.

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 981,9 hPa og er það 20,7 hPa undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Mánaðarþrýstimeðaltalið hefur aðeins 5 sinnum verið lægri í febrúar síðustu 200 árin. Lægsta meðaltalið er frá 1990, 976,3 hPa.

Hæsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 1013,8 hPa í Önundarhorni þ. 4. Lægstur mældist loftþrýstingurinn 932,3 í Surtsey þ. 15. Það er þriðji lægsti þrýstingur sem mælst hefur í febrúarmánuði, síðast var hann lægri 1989 þegar þrýstingur á Stórhöfða mældist 931,9 hPa.

Fyrstu tveir mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík var 0,3 stig sem er 0,4 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 en 1,0 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 53. sæti á lista 150 ára. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna tveggja -1,0 stig. Það er 0,9 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 0,9 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 46. til 47. sæti á lista 140 ára. Úrkoma hefur verið 20% umfram meðallag í Reykjavík, en um 65% umfram meðallag á Akureyri.

Skjöl fyrir febrúar

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í febrúar 2020 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur ákveðnum veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.