Tilkynningar um breytt lögheimili þurfa að hafa borist Þjóðskrá fyrir hádegi þann 6. apríl nk. til að öðlast gildi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara þann 14. maí 2022.

Skráning kjósanda á kjörskrá miðast við skráningu lögheimilis hans kl. 12 á viðmiðunardegi kjörskrár þann 6. apríl 2022.

Þjóðskrá – tilkynning

Því er mikilvægt að tilkynningar um lögheimilisflutning berist Þjóðskrá eigi síðar en 5. apríl svo búið verði að skrá breytingarnar í þjóðskrá fyrir útgáfu kjörskrár.

Þann 8. apríl n.k. er gert ráð fyrir að opnað verði fyrir vefuppflettið „Hvar á ég að kjósa“ á skra.is þar sem einstaklingar geta athugað hvar þeir eigi að kjósa.

Finna má ýmsar upplýsingar um kosningarnar á kosningar.is