Hinni árlegu hundahreinsun á vegum sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur verið frestað vegna samkomutakmarkana í janúar.

Ákvörðun um frestun er tekin að höfðu samráði við dýralækni. Hreinsunin verður auglýst og framkvæmd um leið og sóttvarnarreglur leyfa.

Hægt er að fá hunda hreinsaða hjá Dýraspítalanum Glæsibæ og Dýralæknaþjónustunni Varmahlíð, sé bráð þörf til.