Geðhjálp býður 30 skammta af G-vítamíni á þorranum; lítil og létt ráð sem er ætlað að bæta geðheilsu.

Oft hefur þörfin verið mikil en sjaldan hefur verið jafn nauðsynlegt og nú að fá sér hraustlega af G-vítamíni.

Þar kemur G-vítamín dagatal Geðhjálpar sterkt til leiks, annað árið í röð.

Markmiðið er að styrkja geðheilsu landsmanna og þannig verja okkur og styrkja í mótbyr. Með daglegri inntöku G-vítamíns myndum við sterkara ónæmi, því þessi einföldu ráð eru verndandi þættir geðheilsu.



Í hverjum glugga dagatalsins er að finna góð ráð til að efla og gleðja geðið ásamt einföldum leiðum til að efla geðheilsuna á þessum árstíma sem reynist mörgum þungur.

Nú þegar hafa vítamínin „Vertu til staðar“, „Láttu þig langa í það sem þú hefur“, „Mundu að brosa” og „Prófaðu eitthvað nýtt“ meðal annars birst í gluggunum.

Í dagatalinu erum við hvött til að dvelja ekki við áhyggjur af fortíð eða framtíð, vera þakklát fyrir það sem við höfum, laumast út fyrir þægindahringinn okkar til að upplifa eitthvað óvænt og muna að brosa.


Hægt er að kaupa G-vítamín dagatalið hér en þau verða einungis í sölu til 3. febrúar svo nú er lag að tryggja sér eintak.

Það skemmir ekki fyrir að dagatalið er líka happdrættismiði með fjölda stórglæsilegra vinninga í boði. Sem dæmi má nefna heimatónleika með Bríeti, Flott, KK bandi, Friðriki Dór og Jóni Jónssyni, Emmsje Gauta, rafmagnshjól, listaverk eftir Prins Póló, Leif Ými, Kristínu Gunnlaugsdóttur og Jón Óskar, ferðagjafabréf og margt fleira.

Við erum öll með geð og það er okkar að hlúa að því.


Aðsent