Í dag verður Þátturinn Tíu dropar á sínum stað, í beinni útsendingu frá hellinum á Kanarí, kl 13.00 – 15.00 GMT.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum frá helli sínum í Angostura gljúfri á Kanaríeyjum.

Nú hefur þeim borist liðsauki, kettlingurinn Don Franco tiplar eflaust yfir takkana í stúdíóinu.

Þau hjónin spjalla um allt mögulegt milli himins og jarðar, fara yfir fréttir vikunnar á trolli.is og spila létt lög úr ýmsum áttum.

Eins og venjulega verður uppskrift vikunnar á sínum stað.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is