Í dag kl. 13:00 er þátturinn Tíu Dropar á FM Trölla í beinni útsendingu frá Kanaríeyjum og Póllandi.
Það eru “Tröllahjónin” Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem stjórna þættinum.
Leikið verður nýtt íslenskt lag sem var að koma út.
Þátturinn verður ekki hefðbundinn að þessu sinni, þar sem Kristín er stödd í Póllandi, Gunnar Smári í helli þeirra hjóna á Gran Canaria og Andri Hrannar verður sérlegur “vængmaður”, svo allt getur gerst.
Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13:00 – 15:00.
FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is