Í dag verður Þátturinn Tíu Dropar sendur út frá Kanarí, kl 13.00 – 15.00 GMT.

Við ætlum að gefa heppnum hlustanda miða á 1-1-2 tónleika Björgunarsveitarinnar Stráka, í beinni útsendingu, fylgist með.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum og senda út frá bænum Vecindario á Gran Canaria.

Þau hjónin spjalla um allt mögulegt milli himins og jarðar, fara yfir fréttir vikunnar á trolli.is.

Uppskrift vikunnar verður á sínum stað og leikin skemmtileg tónlist.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á síðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is