Kristín og Gunnar Smári

FRÉTT UPPFÆRÐ

Af óviðráðanlegum ástæðum fellur þátturinn niður í dag.

 

Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni útsendingu frá Kanarí, kl 13.00 – 15.00 GMT.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum frá helli í Angostura gljúfri.

Þau spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög úr öllum áttum.

Nú hefur netsambandið í hellinum verið bætt með búnaði hátt uppi í fjalli, svo vonandi verður sambandið í lagi.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is

 

Loftnet og router á fjallinu ofan við hellana

 

Stærra samhengi

 

Búnaðurinn er merktur til að skotveiðimenn og aðrir fjallgöngumenn viti frekar hvað um er að vera þarna