Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni útsendingu, kl 13.00 – 15.00.
Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum.
Þátturinn verður sendur út beint frá stúdíó FM Trölla á Siglufirði.
Þau Tröllahjón spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög. Eflaust verður rætt um orma í þættinum og þá merkilegu lífsreynslu sem þau hjónin lentu í á síðasta ári og sögðu frá í fréttum í gær á Trölli.is “Með orma inni í mér“.
Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn og aðra með dýr eða takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is