Kristín og Gunnar Smári

Í dag kl. 13 hefst þátturinn Tíu Dropar á FM Trölla og verður í beinni útsendingu frá Gran Canaria.

Að þessu sinni verður einnig hægt að sjá lifandi mynd úr hljóðveri á meðan þátturinn er í loftinu með því að smella hér. Til að heyra hljóðið þarf að smella á “Unmute” neðst til vinstri ( sjá skjáskot hér neðar ).

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum og senda út frá bænum Vecindario á Gran Canaria.

Þau hjónin spjalla um allt mögulegt milli himins og jarðar, fara yfir fréttir vikunnar á trolli.is.

Uppskrift vikunnar verður á sínum stað og leikin skemmtileg tónlist.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á síðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is