Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Úthlutunarnefnd skipa Anna Mjöll Karlsdóttir lögfræðingur (formaður), samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands, Anna Birgitta Geirfinnsdóttir löggiltur endurskoðandi, samkvæmt tilnefningu Ríkisendurskoðunar og Jón Gunnar Ólafsson, nýdoktor við Háskóla Íslands, samkvæmt tilnefningu samstarfsnefndar háskólastigsins. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra.

Alls bárust 28 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 962 milljónir kr. Þremur umsóknum var synjað þar sem þær uppfylltu ekki öll skilyrði fyrir rekstrarstuðningi skv. 62. gr. g laga um fjölmiðla nr. 38/2011.

Í 62. gr. i laga um fjölmiðla kemur fram að rekstrarstuðningur skuli að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjenda. Þá ráðist endanlegt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna. Auk þess fá staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðisins 20% álag á upphæð styrks. Til úthlutunar voru 476,7 millj. kr. að frádregnum kostnaði vegna umsýslu, sérfræðiaðstoðar, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunarnefndar o.fl. sem var um 0,013% af heildarfjárhæð eða 6.182.324 kr. Til úthlutunar voru því 470.517.676 kr.

Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta eftirfarandi 25 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2023:

Árvakur hf.107,155,187 
Birtíngur útgáfufélag ehf.20,032,898          
Bændasamtök Íslands20,816,416 
Eigin herra ehf.3,103,234 
Elísa Guðrún ehf.5,931,816 
Eyjasýn ehf.2,367,395 
Fótbolti ehf.7,678,544 
Fröken ehf.10,974,262 
Hönnunarhúsið ehf.1,600,769 
Leturstofan Vestmannaeyjum ehf.4,020,746 
MD Reykjavík ehf.7,855,101 
Mosfellingur ehf.2,107,530 
Myllusetur ehf.33,997,545 
Nýprent ehf.5,950,249 
Prentmet Oddi ehf.4,836,300 
Saganet – Útvarp Saga ehf.4,732,544 
Sameinaða útgáfufélagið ehf.54,701,442 
Skessuhorn ehf.15,826,217 
Sólartún ehf.16,119,419 
Steinprent ehf.2,616,804 
Sýn hf.107,155,187 
Tunnan prentþjónusta ehf.3,801,810 
Útgáfufélag Austurlands ehf.7,460,416 
Útgáfufélagið ehf.6,713,182 
Víkurfréttir ehf.12,962,661 

Mynd/ samansett úr skjáskotum vefmyndavélar Trölla og vefsíðu Tunnunnar