Tjaldsvæðunum á Stóra Bola og á Rammatúninu lokað
frá og með mánudeginum 24. ágúst n.k.
Ákveðið hefur verið að loka tjaldsvæðunum Stóra Bola og á Rammatúninu á Siglufirði frá og með mánudeginum 24. ágúst.
Áfram verður opið á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði og tjaldsvæðinu í miðbæ Siglufjarðar og þar er full þjónusta.
Nægt pláss er á þessum tveimur tjaldsvæðum til að anna eftirspurn fram að auglýstri lokun 15. október nk.