Hópur fólks kom saman á Rammatúni við minnisvarðann um drukknaða og týnda sjómenn kl. 13.30 á sjómannadaginn á Siglufirði.
Blómsveigur var lagður við minnisvarðann og Elías Pétursson bæjarstjóri Fjallabyggðar flutti ávarp.
Þá voru sjómennirnir Baldur Bóasson sem lést 16. febrúar síðastliðinn og Júlíus Árnason heiðraðir fyrir störf sín til sjós.
Síðan var slysavarnadeildin Vörn með kaffisölu á Rauðku.
Meðfylgjandi myndir tóku Birgitta Þorsteinsdóttir og Jóhanna Hauksdóttir.

Júlíus Árnason og Hrólfur Baldursson sonur Baldurs Bóassonar. Mynd Birgitta Þorsteinsdóttir

Blómsveigur lagður að minnisvarða um drukknaða og týnda sjómenn.
Mynd Jóhanna Hauksdóttir
Elías Pétursson bæjarstjóri Fjallabyggðar flutti ávarp.
Mynd Jóhanna Hauksdóttir
Hrólfdís Hrólfsdóttir og Hrólfur Baldursson.
Mynd Jóhanna Hauksdóttir
Júlíus Árnason.
Mynd Jóhanna Hauksdóttir
Júlíus ásamt systkinum sínum. Mynd Jóhanna Hauksdóttir
Forsíðumynd/ Birgitta Þorsteinsdóttir



