Meðlimir úr Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar afhentu á dögunum umhverfisverðlaun Skagafjarðar 2020. Hefð er orðin fyrir því að konur úr Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar fari í skoðunarferðir um Skagafjörð á sumrin til að meta bæi, hverfi og svæði í firðinum fyrir umhverfisverðlaunin, sem er samvinnuverkefni klúbbsins og Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Að loknu mati er valið úr hópi tilnefninga í samráði við garðyrkjustjóra sveitarfélagsins og voru viðurkenningar afhentar núna í september, 16. árið í röð.

Í ár voru veitt sex verðlaun í fimm flokkum og hafa því verið veittar 100 viðurkenningar á 16 árum.

Viðurkenningarflokkarnir sem koma til greina eru sjö talsins, en ekki er alltaf veitt verðlaun í öllum flokkum á sama ári.

Flokkarnir eru:

  • Sveitabýli með búskap
  • Sveitabýli án búskapar
  • Lóð í þéttbýli
  • Lóð við fyrirtæki
  • Lóð við opinbera stofnun
  • Snyrtilegasta gatan
  • Einstakt framtak

Tvenn verðlaun voru veitt í flokknum lóð í þéttbýli:

Dalatún 1, Sauðárkróki.Dalatún 1 er í eigu Steinunnar Huldu Hjálmarsdóttur og Halldórs Hlíðars Kjartanssonar.

Raftahlíð 29, Sauðárkróki.Raftahlíð 29 er í eigu Herdísar Klausen og Árna Stefánssonar.

Verðlaun fyrir snyrtilegustu götuna hlutu íbúar Furulundar í Varmahlíð.

Lóð við opinbera stofnun sem hlaut verðlaun í ár er Slökkvistöðin á Sauðárkróki. 

Verðlaun fyrir snyrtilegasta umhverfi fyrirtækis hlaut Kjarninn á Sauðárkróki.

Að lokum voru veitt verðlaun fyrir einstakt framtak.Þau verðlaun hlutu Svanhildur Guðjónsdóttir og fjölskylda fyrir vatnspóstinn á Hofsósi sem vígður var í sumar. Vatnspósturinn er gjöf frá Svanhildi og fjölskyldu og er til minningar um eiginmann Svanhildar, Friðbjörn Þórhallsson. Minnisvarðinn er mikil prýði og stendur við sundlaugina á Hofsósi, rétt fyrir ofan Staðarbjargavík þar sem spor Friðbjörns gjarnan lágu eins og segir á vatnspóstinum.  

Sveitarfélagið Skagafjörður og Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar óska öllum verðlaunahöfum til hamingju og þakka þeim fyrir að láta umhverfið skipta sig máli.

Sjá fleiri myndir: Hér

Mynd/Skagafjörðir.is