Skipulagslýsing – upphaf vinnu við breytingu deiliskipulags á Leirutanga, Siglufirði

Bæjarstjórn Fjallabyggðar leitar ábendinga á fyrirhugaðri breytingu á deiliskipulagi Leirutanga á Siglufirði. Í skipulagslýsingu, sem gefin er út af Stoð ehf. fyrir Bás ehf., koma fram upplýsingar um forsendur, stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Tilgangur með útgáfu lýsingar er að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum.

Helsta viðfangsefni deiliskipulagsbreytingarinnar er að aðlaga núverandi starfsemi að þeirri stefnu sem sett er fram í deiliskipulagi og skapa núverandi lóðarhöfum við Egilstanga 1 og 5, forsendur til að þróa og efla sína starfsemi í sátt við næsta umhverfi og náttúru Leirutanga. Deiliskipulagið kallar á breytingu Aðalskipulags Fjallabyggðar 2020-2032 sem verður unnið samhliða deiliskipulagsbreytingunni.

Skipulagslýsingin sem er sett fram í greinargerð er til sýnis á tæknideild, í Ráðhúsi Fjallabyggðar og  á heimasíðu sveitarfélagsins www.fjallabyggd.is.

Íbúum og hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að senda inn ábendingar varðandi viðfangsefni og markmið skipulagsins. Ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði eða á netfangið iris@fjallabyggd.is fyrir lok 27. febrúar nk.

Leirutangi – skipulagslýsing (Pdf)