Sunnudaginn 3. febrúar voru veittir styrkir úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra við athöfn í félagsheimilinu Ljósheimum, Skagafirði.

Meðal þeirra sem fengu styrk var Holt-menningarsetur á Hvammstanga, en þaðan er einmitt þátturinn Síld og Fiskur sendur út á FM Trölla á sunnudagskvöldum kl. 20.

Ávörp fluttu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, Hildur Þóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Pure Natura og Lárus Ægir Guðmundsson, formaður úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs. Skagfirski kammerkórinn söng tvö lög undir stjórn Helgu Rósar Indriðadóttur og fiðlu- og slagverkshópur flutti tvö lög undir stjórn Kristínar Höllu Bergsdóttur. Samkomunni stjórnaði Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV.

Alls bárust 109 umsóknir þar sem óskað var eftir 185 milljónum króna í styrki. Sjötíu og tveir styrkir voru veittir til 62 aðila samtals að upphæð 65,5 millj. kr.

Umsóknir um styrki voru fjölbreyttar og mörg áhugaverð verkefni. Styrkupphæðir eru frá 100 þúsund krónum til fjögurra milljóna.

Fjármagn Uppbyggingarsjóðsins er hluti af samningi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra við stjórnvöld um framkvæmd Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2015-2019. Styrkhafar eru:

Atlantic Leather ehf. Atlantic products, karlmanns lína 1.699.000
Blönduósbær Húnavaka – hátíð í bæ 18.-21. júlí 2019 400.000
Búminjasafnið Lindabæ Stofn- og rekstrarstyrkur 400.000
Byggðasafn Húnv. og Strandamanna Heyskapur í Tungunesi 250.000
Byggðasafn Skagfirðinga Torfhleðsla í fortíð, nútíð og framtíð 550.000
Byggjum upp Hofsós og nágrenni Bæjarhátíðin Hofsós heim 400.000
Digital horse ehf. Stofn- og rekstrarstyrkur 850.000
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir Úrvinnsla afurða 622.154
Ferðamálasamtök Norðurlands vestra Krakkakort Norðurlands vestra 837.616
Félag eldri borgara Húnaþingi vestra Vor- og jólatónleikar 2019 250.000
Félag eldri borgara í Skagafirði Sönghópur Félags eldri borgara í Skagafirði 250.000
Félag ferðaþjónustunnar í Skagafirði Matarviðburður á Norðurlandi vestra 1.834.000
Fluga hf. Sveitasæla 2019 300.000
Gudrun A. M. Kloes 70 ár í framandi landi 400.000
Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson Fylgd – leikgerð 150.000
Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi Stofn- og rekstrarstyrkur 1.000.000
Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi Stofutónleikar Heimilisiðnaðarsafnsins 150.000
Heimilisiðnaðarsafnið Blönduósi Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 250.000
Helga Rós Indriðadóttir Heimþrá 300.000
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga Kristmundur Bjarnason 100 ára 100.000
Húnavatnshreppur Þrístapar – kynningaráætlun og nýnæmi 2.500.000
Kakalaskáli Hönnun og gerð sýningar um Þórð kakala 2.000.000
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps Starfsárið 2019 400.000
Karlakórinn Heimir Karlakórinn Heimir – Tónleikahald 2019 400.000
Karlakórinn Lóuþrælar Vor- og jólatónleikar 2019 400.000
Kristín Halla Bergsdóttir Hugarró 350.000
Kristín Björg Ragnarsdóttir Stíll og spor – opinber einkasýning 150.000
Kvennakórinn Sóldís Ó, leyf mér þig að leiða 400.000
Leikfélag Hofsóss Leikárið 2019 350.000
Leikfélag Sauðárkróks Lína langsokkur 400.000
Leikfélag Sauðárkróks Fylgd 400.000
Leikflokkur Húnaþings vestra Hárið 1.000.000
Menningarfélag Húnaþings vestra Söngvarakeppni Húnaþings vestra 225.000
Menningarfélag Húnaþings vestra Stofn- og rekstrarstyrkur 300.000
Menningarfélagið Spákonuarfur Stofn- og rekstrarstyrkur 2.100.000
Nemendafélag FNV Menningarviðburðir NFNV 550.000
Nes listamiðstöð ehf. Stofn- og rekstrarstyrkur 1.000.000
Nes listamiðstöð ehf. Að heiman – listsýning 600.000
Nes listamiðstöð ehf. Aukin listmenntun í skólum á Norðurl. vestra 550.000
Oddur Sigurðarson League Manager – Mótastýring 21. aldar 2.000.000
Olga Linda Geirsdóttir Spunaverksmiðja 1.355.750
Plús film ehf. Karlakórinn Heimir í 90 ár 700.000
Pure Natura Rannsóknarstyrkur Pure Natura 1.500.000
Rökkurkórinn Það gefur á bátinn 400.000
Samgönguminjasafn Skagafjarðar Stofn- og rekstrarstyrkur 2.100.000
Selasetur Íslands ehf. Stofn- og rekstrarstyrkur 2.100.000
Sigurvald Ívar Helgason Smáviðburðir í Holti – menningarsetri 200.000
Sjávarlíftæknisetrið Biopol Vinnsla ullarfitu úr íslenskri ull 2.267.000
Skagfirski kammerkórinn Aftur kemur vor í dal 350.000
Skíðadeild Umf. Tindastóls Markaðssetning fyrir skíðasvæðið í Tindastóli 910.000
Skotta ehf. Lundinn – undirbúningsverkefni 600.000
Skotta ehf. Torfbærinn – upplifun 2.500.000
Stefanía Hjördís Leifsdóttir Mjólkun sauð- og geitfjár og ostavinnsla 2.000.000
Stúdíó Benmen Benmen slf. 1.500.000
Sýndarveruleiki 1238 – The Battle of Iceland 4.000.000
Sögufélag Skagfirðinga Byggðasaga Skagafjarðar 2.100.000
Sögusetur íslenska hestsins Stofn- og rekstrarstyrkur 1.500.000
Sögusetur íslenska hestsins Prýðileg reiðtygi 400.000
Textílsetur Íslands ses. Stofn- og rekstrarstyrkur 1.000.000
Textílsetur Íslands ses. Prjónagleði 2019 500.000
Tónadans Tónadans – Barnamenningardagar 350.000
Ungmennasamband A-Hún. Húnavökurit 2019 450.000
Ungmennasamband V-Hún. Húni 40. árgangur 400.000
Verslunarminjasafnið Hvammstanga Stofn- og rekstrarstyrkur 400.000
Vesturfarasetrið ses Sýningin „Vestur við haf“ 1.000.000
Viðburðaríkt ehf. Drangey Music Festival 2019 700.000
Vilko Próteinbættar vörur 1.032.000
Vinir Kvennaskólans á Blönduósi Saga Kvennaskólans á Blönduósi 1879-1978 1.000.000
Vitaðsgjafi ehf. Markaðssetning verslunarinnar Tundru 1.489.110
Þekkingarsetrið á Blönduósi Nýsköpun í vefnaði 1.800.000
Þekkingarsetrið á Blönduósi Hreint ljómandi haf 200.000