Vetrarsólstöður eru í dag 22. desember, en ekki á 21. degi desember mánaðar eins og oftast er.
Daginn fer að lengja strax á morgun, þá um örfáar sekúndur og svo hraðar eftir það. Norðanlands er birtutími um klukkustund skemmri en syðra. Í gær 21. desember var sólarupprás á Siglufirði kl. 11:54 og sólarlag kl. 14:33.
Sólstöður eða sólhvörf er sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs. Sólstöður eru tvisvar á ári, sumarsólstöður á tímabilinu 20.-22. júní, þegar sólargangurinn er lengstur og vetrarsólstöður 20.-23. desember, þegar hann er stystur.
Breytileiki dagsetninganna stafar fyrst og fremst af hlaupársdögum. Nafnið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, það er hættir að hækka eða lækka á lofti.
Heimild: Wikipedia og Veðurstofa Íslands
Skjáskot: Wikipedia