Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í að byggja anddyri, búningsklefa og tengibyggingu við núverandi sundlaugarbyggingu og íþróttahús á Siglufirði, samtals 292,3 m2 á tveimur hæðum ásamt rifi á tengigangi skv. útboðsgögnum AVH.
Verktími er frá apríl 2022 til síðla árs 2023 en sérstaklega er bent á að frávikstilboð eru heimil m.t.t. þess hvernær verkinu verði lokið.
Helstu magntölur eru:
Gröftur | 1.200 m3 |
Steypumót | 1.400 m² |
Steypustyrktarstál | 10.000 kg |
Steinsteypa | 190 m3 |
Kerfisloft | 260 m² |
Málun | 600 m² |
Flísalögn samtals | 600 m² |
Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með 8. mars nk.
Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 29. mars og verða tilboðin opnuð kl. 13:30 sama dag í ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun tilboða á fjarfundi óski þeir þess.
Engin tilboð bárust í viðbyggingu íþróttamiðstöðvar Siglufjarðar
Mynd/Fjallabyggð