Rauði kross Íslands, Fjölskyldusvið Húnaþings vestra, Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Þjóðkirkjan hafa ákveðið samstarf um vinaverkefni undir forystu Húnavatnssýsludeildar Rauða krossins.

Fljótlega verður auglýst eftir fólki sem vill taka þátt í verkefninu og fara á námskeið því tengdu. Myndin er tekin þegar samstarfið var ákveðið.

Nánari upplýsingar um verkefnið á landsvísu má lesa hér. https://www.raudikrossinn.is/verkefni/innanlandsverkefni/heilbrigdi-og-velferd/vinaverkefni/

Sveindís Lea Pétursdóttir, formaður Húnavatnssýsludeildar Rauða krossins.

Guðrún Elín Benonýsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands.

Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Húnaþings vestra

Magnús Magnússon, sóknarprestur í Húnavatnsprestakalli.

Henrike Wappler, yfirfélagsráðgjafi fjölskyldusviðs Húnaþings vestra.

Mynd/Húnaþing vestra