Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar stendur fyrir fundi með ferða-, þjónustu,- menningar- og afþreyingaraðilum í Fjallabyggð þriðjudaginn 16. mars 2021 frá kl. 17:00 – 19:00
Fundarstaður: Menningarhúsið Tjarnarborg í Ólafsfirði.
Gætt verður að sóttvörnum.
Boðið upp á léttar veitingar, kaffi og gos á fundinum.
Dagskrá:
Ferðaþjónustan árið 2021
17:00 – 17:20 Staða ferðaþjónustunnar í vetur 2020-2021
17:20 – 17:40 Páskavertíðin, þjónusta og opnunartímar
17:40 – 18:20 Eru aðilar tilbúnir fyrir sumarið 2021
18:20 – 18:40 Samstillt átak í markaðsmálum
18:40 – 19:00 Umræður
Fundarstjóri: Ólafur Stefánsson, formaður markaðs- og menningarnefndar.
Allir velkomnir.
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn bæði fyrir yfirsýn yfir fjölda vegna veitinga og einnig ef til þess kemur að merkja þurfi sæti vegna fjölda.