Vorfundur smábátasjómanna 2026 fer fram í dag, 9. apríl, á netinu frá klukkan 17:00 til 18:30. Að fundinum standa Landssamband smábátaeigenda, Samgöngustofa og Slysavarnaskóli sjómanna.
Fundurinn er ætlaður smábátasjómönnum og öðrum áhugasömum um öryggismál á sjó og verður boðið upp á fjölbreytta og fræðandi dagskrá þar sem farið verður yfir ýmsa þætti sem snúa að starfsemi smábáta, öryggisbúnaði og verklagi.
Dagskrá
Opnun: Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda
Dagskrá og önnur mál, Þorsteinn Þorkelsson sérfræðingur hjá Samgöngustofu
Umræður og sýnikennsla um frágang, uppsetningu og losun björgunarbáta. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson starfsmenn Samgöngustofu.
Hættumat um borð. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson
Kaffihlé
Frumsýning á nýjum auglýsingum Slysavarnafélagið Landsbjörg og Samgöngustofu um frágang og uppsetningu björgunarbáta og mikilvægi gátlista áður en lagt er af stað úr höfn.
Aggan, öryggisapp fyrir smábáta, Gísli Níls Einarsson hjá Alda Öryggi
Kynning og umræður um öryggismál smábáta. Bogi Þorsteinsson skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna
Áherslur aðgerðasviðs Landhelgisgæsla Íslands vegna strandveiða
Skútan lögskráningarkerfi sjómanna notkun og forsendur. Helgi Jóhannesson, deioldarstjóri áhafna, skráninga og leyfa hjá Samgöngustofu
Umræður ef tími gefst til (fundarmönnum verður líka boðið að senda spurningar inn á fundinn sem verður svarað á fundinum eða eftir hann gefist ekki tími til)
Efni fundar
Hér að neðan eru tenglar á efni sem rætt verður á fundinum. Að auki má nálgast fræðslu- og öryggisefni fyrir smábátasjómenn hér: http://island.is/smabatar.
- Hættumat í skipum og bátum
- Agga – Öryggisapp fyrir smábáta
- Skútan – Lögskráningar og skipaskrá
- Slysavarnaskóli sjómanna
Fylgst með fundinum á Siglufirði
Fundurinn fer fram á netinu og geta áhugasamir fylgst með honum þar. Einnig verður boðið upp á að hittast í húsnæði Slysavarnafélagið Landsbjörg víðs vegar um landið til að fylgjast með fundinum saman, ræða málin og njóta kaffiveitinga.
Á Siglufirði verður hægt að fylgjast með fundinum í sal Slysavarnardeildarinnar Varnar við Tjarnargötu 18 á Siglufirði.
Bein útsending:
Smellið hér til að fylgjast með beinni útsendingu.
Mynd: Smári / Trolli.is





