Heimsóknarreglur Hornbrekku voru hertar 24. mars sl. vegna aukningar á COVID smitum í samfélaginu. Nú eru tveir nánustu ættingjar sem hafa kost á að koma í heimsókn á dag.

Börn yngri en 18 ára mega ekki koma í heimsókn á Hornbrekku. Íbúar mega fara í heimsókn til ættingja.
Töluverð veikindi hafa verið hjá íbúum og mikið um sjúkrahúsferðir.

Búið er að ráða í sumarafleysingar og unnið er að sumarskýrslum, og eru þær langt komnar.

Framkvæmdir standa yfir við breytingar á íbúaherbergjum. Haldið verður áfram þar til búið verður að skipta um gólfefni, fataskápa og salerni á öllum herbergjum.

Hjúkrunarforstjóri er að ganga frá undanþágubeiðni frá kröfulýsingu SÍ vegna iðjuþjálfa, matartækni og næringarrekstrarfræðing.

Hjúkrunarforstjóri er langt komin með undirbúningsvinnu vegna útboðs á ræstingu á Hornbrekku, en illa hefur gengið að fá afleysingu í veikindum starfsmanns í ræstingu.