Bókasafnið í Ólafsfirði verður lokað dagana 24. – 26. október nk.

Vegna Landsfundar Upplýsingar 2018 verður bókasafnið í Ólafsfirði  lokað dagana 24.-26. október nk.

Við biðjum okkar góðu gesti velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Opið verður í bókasafninu á Siglufirði frá kl. 13.00-17:00 þessa sömu daga.

Lokað verður á héraðsskjalasafninu!

Ef áríðandi hafið þá samband við Hrönn á netfangið:  hronn@fjallabyggd.is

Landsfundur Upplýsingar er samstarfsvettvangur starfsfólks bókasafna um land allt. Hann er haldin annað hvert ár og er að þessu sinni í Silfurbergi, Hörpu í Reykjavík.