Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 148 einstaklingar til hjúskapar í maí sl. en 120 einstaklingar skildu.

Hjúskapur

Af þeim 148 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í maí mánuði gengu 80 í hjúskap hjá sýslumanni eða 54,1%, 46 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 31,1%, og 20 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trúfélagi eða 13,5% og loks gengu 2 einstaklingar í hjúskap erlendis.
Ef bornir eru saman fimm fyrstu mánuðir ársins við síðasta ár þá voru 934 einstaklingar skráðir í hjúskap á þessu ári samanborið við 1.099 einstaklinga á síðasta ári. Þetta er 15% fækkun milli ára. 

Skilnaðir

Alls skildu 120 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í maí sl. Þar af gengu 110 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og 6 fyrir dómstólum. 
Sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2020. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskaps til Þjóðskrár Íslands.