Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2020.

Í Fjallabyggð er hlutfall erlendra ríkisborgara 6,9%, aftur á móti er hlutfallið í Húnaþingi vestra 11,2%.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 44% niður í 1%  þó að jafnaði sé hlutfallið um 14% þegar horft er til allra sveitarfélaga.


Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru  47,3% íbúa hreppsins með erlend ríkisfang. Þann 1. desember sl. voru 361 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu í Mýrdalshreppi af alls 764 íbúum hreppsins.

Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 33,2% og Súðavíkurhreppur með 31,2% íbúa.
Þess má geta að það sveitarfélag sem er með lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er Árneshreppur en einn íbúi hreppsins er með erlend ríkisfang í hreppnum sem gerir rúmt 2,5% íbúa.

Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang á Suðurnesjum með 23,4% íbúa og Vestfirðir koma næst með 17,1% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er á Norðurlandi eystra með 8,2%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 1. desember 2020.