Nemendur 6.-10.bekkjar í Grunnskóla Fjallabyggðar hlupu í Ólympíuhlaupi ÍSÍ í gær.

Alls voru það 79 nemendur sem tóku þátt og hlupu þeir samtals 655 km. Veðrið lék við hlauparana, hlýtt var í veðri, logn og smá rigning. Sem sagt fullkomið hlaupaveður.

Nú á næstu dögum munu svo krakkarnir innheimta áheitin sem þeir söfnuðu.

 

Mynd: Grunnskóli Fjallabyggðar