Tælenskar kjúklinganúðlur – uppskrift fyrir 3-4
- 2 kjúklingabringur
- 6 dl vatn
- 1,5 kjúklingateningur
- 2 msk fiskisósa
- 1,5 msk sykur
- 1 tsk chilliflögur
- 1 lime, fínrífið hýðið (passið að taka bara græna hlutann) og safinn úr helmingnum
- 50 g ferskt engifer, rifið
- 200 ml kókosmjólk
- 1 hvítlauksrif
- 100 g glass noodles
- 1/2 dós bambus, skolið vel og skerið í aðeins minni bita
Setjið vatn, kjúklingakraft, fiskisósu, sykur, chilliflögur, lime (hýðið og safann) og rifið engifer í pott og látið suðuna koma upp. Skerið hvora bringu í tvennt eftir þeim endilöngum og leggið í pottinn. Látið sjóða án loks í um 40 mínútur, eða þar til kjúklingakjötið nánast dettur í sundur og vökvinn hefur minnkað til muna. Takið kjúklinginn úr pottinum og rífið hann í sundur með tveim göfflum. Bætið kókosmjólk og hvítlauk út í soðið sem var eftir í pottinum og látið suðuna koma upp.
Takið pottinn af hitanum og leggið núðlurnar í hann. Látið þær liggja í nokkrar mínútur eða þar til þær hafa tekið mestu sósuna í sig. Klippið núðlurnar aðeins niður í pottinum með skærum. Endið á að hræra kjúklingnum og bambusnum út í . Berið fram með hökkuðum salthnetum og sojasósu.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit




