Sýnið varúð – unnið að uppsetningu ofanflóðavarna ofan Siglufjarðar.
Þetta sumarið er verið að vinna við áfanga fjögur í uppsetningu á stoðvirkjum til ofanflóðavarna, svæði D við Fífladali.
Á meðan unnið er í hlíðum fjallsins er óviðkomandi aðgangur bannaður með öllu á svæði D.
Unnið er á svæði D á milli klukkan 07:00 og 17:00 alla daga nema sunnudaga. Það ætti því að vera óhætt að ganga upp í Hvanneyrarskál utan þess tíma sem skilgreindur er hér að framan.