Í dag, laugardaginn 6. júlí, er dagskrá Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði sem hér segir:

DANSAÐ Á KIRKJULOFTINU

Siglufjarðarkirkja 10.00-12.00
Íslenskir þjóðdansar og bandarískir kontradansar. Opið öllum.

 

STRÍÐ OG KLIÐUR

NÝ TÓNLIST FYRIR BLANDAÐAN KÓR

Siglufjarðarkirkja 14.00
Kórinn Kliður. Aðalstjórnandi: Jelena Ćirić.

 

MÆÐUR OG MEYJAR
ÍSLENSK ÞJÓÐLÖG

Siglufjarðarkirkja 15.30
Þjóðlagasveitin Úmbra. Hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2018 í flokki þjóðlagatónlistar.

Lilja Dögg Gunnarsdóttir söngur,  Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir fiðla, Alexandra Kjeld kontrabassi og Arngerður María Árnadóttir harpa og orgel.

 

EKKERT FÆR SÖKKT ÞEIM EYJUM
SÆNSK ÞJÓÐLÖG FRÁ FINNLANDI

Þjóðlagasetrið 15.30
Systkinin Alli fiðla og Volter Pylkkö fiðla, Finnlandi. Aðgangur ókeypis.

 

EPICYCLE
TÓNLIST Í 2000 ÁR, ALLT FRÁ HILDEGARD VON BINGEN TIL HARRY PARTCH
ÚTSETT AF GYÐU VALTÝSDÓTTUR

Bátahúsið 17.00
Gyða Valtýsdóttir söngur og selló, Daníel Friðrik Böðvarsson gítar, Julian Sartorius trommur.

 

UPPSKERUHÁTÍÐ ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐAR

Síldarminjasafnið 20.30
Listamenn á þjóðlagahátíð koma fram. Sérstakir gestir: Astri Skarpengland þjóðlagasöngkona frá Noregi og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð.

 

BANDARÍSKT SVEITABALL MEÐ FELABOGA
DANSSTJÓRI: ALIX CORDRAY

Kaffihúsið Rauðka 23.00
Þjóðlagasveitin Felaboga, Noregi: Elizabeth Gaver fiðla, Mattias Thedens  fiðla og banjo, Hans-Hinrich Thedens gítar og banjo, Paul Kirby banjo, Alix Cordray bassi.

 

Dagskrá Þjóðlagahátíðarinnar má finna í heild hér.