Matvælastofnun varar við neyslu á Ali bjúgum frá Síld og fisk ehf. með Best fyrir dagsetningum 04.02.20, 05.02.20 og 11.02.20 vegna gruns um glerbrot í einu bjúga. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vöruheiti: Ali bjúgu
 - Framleiðandi: Síld og fiskur, Dalshrauni 9b, 220 Hafnarfjörður
 - Þyngd: 750 g
 - Best fyrir dagsetningar: 04.02.20, 05.02.20 og 11.02.20
 - Lotunúmer: 14.01.20, 15.01.20 og 21.01.20
 - Dreifing: Verslanir Bónusar, Krónunnar og Hagkaupa. Heimkaup, Nóatún, Iceland Keflavík og Super1
 
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni til fyrirtækisins eða viðkomandi verslunar gegn endurgreiðslu.
Ítarefni
						
							
			
			
			
			

