Miðvikudagurinn 9. nóvember var tileinkaður baráttunni gegn einelti í Grunnskóla Fjallabyggðar.

Nemendur 6. – 10. bekkjar enduðu sinn skóladag á Siglufirði með nemendum 1. – 5. bekkjar þar sem haldinn var vinabekkjadagur. Tveir og tveir bekkir unnu saman að veggspjöldum og stuttum myndböndum tengdum baráttunni.

“Við í skólanum erum alltaf á varðbergi gagnvart einelti og reynum að bregðast hratt og örugglega við ef upp kemur grunur um slíkt. Við hvetjum foreldra til að hafa samband við skólann ef þeir hafa grun um einelti eða aðrar áhyggjur” segir á vefsíðu skólans.

Það var eineltisteymi skólans sem skipulagði daginn sem tókst mjög vel eins og sjá má á myndum . Sjá HÉR

Forsíðumynd/Grunnskóli Fjallabyggðar