Í síðustu viku birtum við skrif eftir Baldvin Esra Einarsson sem er Formaður stjórnar Markaðsstofu Norðurlands og forsvarsmaður ferðaþjónustufyrirtækis á Norðurlandi, þar sem hann lýsir ófremdarástandi á Dettifossvegi yfir vetrartímann.

Nú hefur stjórn Markaðsstofu Norðurlands sent frá sér eftirfarandi ályktun um málið.

Dettifossvegur hefur ekki verið mokaður að vetrarlagi nema tvisvar sinnum á ári, samkvæmt G-reglu Vegagerðarinnar um vetrarþjónustu. Þetta er óásættanlegt og ítrekað hefur verið bent á mikilvægi snjómoksturs á þessum vegi á undanförnum árum. Lítið hefur hinsvegar breyst og í dag er staðan sú að vegurinn er ófær öðrum en þeim sem keyra um á breyttum jeppum. Dettifoss er eitt helsta aðdráttaraflið í ferðaþjónustu á Norðurlandi, enda fossinn sá aflmesti í Evrópu.

Ferðir að Dettifossi ættu ekki að vera erfiðar, því búið er að kosta miklu til við að leggja malbikaðan veg og bílastæði við fossinn. Það er hinsvegar svo að aðeins ferðaþjónustufyrirtæki sem hafa breytta jeppa geta boðið upp á ferðir að fossinum, en rekstur á slíkum bílum er sérhæfður og dýr. Það kemur ekki síst til af því að bílarnir þurfa aukið viðhald og verða fyrir skemmdum á þessum kafla sem mætti kannski frekar að búast við í þeim ferðum sem þeir eru sérstaklega hannaðir fyrir, hálendis- og
jöklaferðum. Ferð að vetrarlagi að Dettifossi ætti ekki að falla í þann flokk miðað við þá innviði sem eru til staðar.

Stjórn Markaðsstofu Norðurlands skorar á stjórnvöld að tryggja fjármagn til þjónustu allt árið um kring við Dettifossveg. Sú þjónusta verður enn mikilvægari þegar búið verður að klára veginn frá Dettifossi og að Ásbyrgi. Ekki verður við það unað að sá vegur verði ekki mokaður yfir vetrartímann, enda sú framkvæmd til þess gerð að tryggja og efla samgöngur um Norðurland allan ársins hring.