Neytendasamtökin vekja athygli á því að á heimasíðu Ferðamálastofu má finna lista yfir ferðaskrifstofur þar sem ferðaskrifstofuleyfi hefur verið fellt úr gildi og ferðaskrifstofurekstri verið hætt.

Samkvæmt lögum nr. 95/2018 um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun þá er sala pakkaferða tryggingar- og leyfisskyld. Slíkum tryggingum er ætlað að endurgreiða fé sem viðskiptavinur hefur greitt vegna pakkaferðar eða samtengdrar ferðatilhögunar.

Ferðamálastofa sér um að birta áskoranir um kröfulýsingar og móttöku þeirra.

Neytendasamtökin hvetja þá neytendur sem telja sig eiga kröfu á hendur þeim ferðaskrifstofum sem birtast á heimasíðu Ferðamálastofu að lýsa kröfum sínum. Á heimasíðunni má jafnframt finna leiðbeiningar og upplýsingar um tímafresti.

Sjá einnig á vef Neytendasamtakanna.