Átta fíkniefnamál hafa komið til kasta lögreglunnar á Norðurlandi vestra það sem af er september.

Aukin áhersla hefur verið lögð á fíkniefnamál og hefur lögreglan m.a. nýtt sér aðstoð fíkniefnaleitarhunda. Sum málanna tengjast akstri undir áhrifum fíkniefna og má það m.a. þakka auknu umferðareftirliti í umdæminu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.

 

Frétt: Lögreglan á Norðurlandi vestra
Mynd: af netinu