Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á fæðubótaefninu Nutra B sterkar – B vítamín extra sterkar.

Varan hefur verið innkölluð af markaði vegna þess að magn B6 vítamíns í ráðlögðum daglegum neysluskammti fæðubótarefnisins fer yfir efri þol-/öryggismörk sem ákvörðuð eru af vísindanefndum Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA).

Ráðlagður daglegur neysluskammtur fyrir fæðubótarefnið er 1-2 töflur á dag en í einni töflu eru 15 mg af B6 vítamíni. Samkvæmt áliti vísindanefnda EFSA eru efri þol-/öryggismörk fyrir B6 vítamín 25 mg á dag fyrir fullorðna.

Aðföng sem dreifa vörunni hafa innkallað hana í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Innköllunin á við um allar lotur (best fyrir dagsetningar) vörunnar:

  • Vörumerki: Nutra
  • Vöruheiti: B sterkar- B vítamín extra sterkar
  • Strikanúmer: 5690350054645
  • Best fyrir: Allar dagsetningar
  • Framleiðsluland: England
  • Dreifing: Allar verslanir Bónuss, Hagkaupa og Super1

 

Sjá nánar á vef Matvælastofnunar