Baka með sætri kartöflu, spínati og fetaosti

Botninn:

  • 3 dl hveiti
  • 100 g smjör
  • 3 msk vatn

Hitið ofninn í 225°. Blandið hráefninu í botninn saman þannig að það myndi deigklump, fletjið hann út og fyllið út í bökumót (líka hægt að nota venjulegt kökuform). Forbakið í ca 10 mínútur.

Fylling:

  • 1 sæt kartafla (meðalstór)
  • krydd eftir smekk (ég var með Best á allt, Ítalska hvítlauksblöndu, salt og pipar)
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 handfylli af spínati
  • 2 msk balsamik edik
  • 2 egg
  • 2 dl mjólk
  • 150 g fetakubbur, mulinn í bita
  • handfylli af cashew hnetum

Skerið sætu kartöfluna í teninga, veltið upp úr ólífuolíu og kryddið. Bakið við 180° í 20 mínútur.

Hakkið lauk og hvítlauk. Hitið pönnu yfir miðlungsháum hita, bræðið smjör á pönnunni og bætið svo lauk og hvítlauk á hana. Steikið þar til mjúkt. Bætið spínati á pönnuna og steikið áfram í um 2 mínútur. Bætið þá balsamik ediki saman við og kryddið með salti og pipar. Steikið allt saman í um 2 mínútur, takið svo af hitanum og látið standa aðeins.

Hrærið saman mjólk og egg.

Setjið helminginn af sætu kartöflunum í botninn á bökubotninn. Setjið lauk- og spínatblönduna, fetaost og cashew hneturnar yfir. Ef það er pláss, stingið þá fleiri sætum kartöflum í bökuna (ef það verður afgangur þá er um að gera að geyma restina t.d. út á salat eða til að eiga sem meðlæti). Hellið eggjablöndunni yfir. Bakið í 35-40 mínútur við 180°. Ef bakan fer að dökkna þá er gott að setja álpappír yfir hana.

Berið fram með góðu salati.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit