Næsta dyravarðanámskeið

Vert er að benda aftur á að síðar í nóvember verður í SÍMEY dyravarðanámskeið í samvinnu við Einingu-Iðju. SÍMEY hefur umsjón með námskeiðinu, en það mun fara fram í SÍMEY á tímabilinu 15. til 24. nóvember 2021, þrjú kvöld í hvorri viku. Lágmarksaldur á námskeiðið er 20 ár. Enginn getur gengt dyravörslu nema þeir sem lögreglustjóri samþykkir. Nemendur þurfa að hafa hreint sakavottorð.

Áhugasamir endilega skráið ykkur, það vantar nokkra í viðbót til að hægt sé að halda námskeiðið!

Fylla þarf út umsókn til lögreglunnar á NE um þátttöku í námskeiðinu  og skila til SÍMEY, Þórsstíg 4 í síðasta lagi viku áður en námskeiðið hefst. Nauðsynlegt er að skila passamynd með umsókn. Auk þess þarf að skrá sig á heimasíðu SÍMEY.  

Verð kr. 35.000. Athugið að námskeiðið er opið öllum og hvetur SÍMEY alla til að kanna rétt sinn á endurgreiðslu þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi. Félagsmenn Einingar-Iðju geta átt rétt á allt að 90% endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá starfsmenntasjóðum, hægt er að hafa samband við félagið til að kanna sinn rétt.

Nánar um námskeiðið og skráning á heimasíðu SÍMEY