Marenering fyrir lambakjöt
- 2 rósmarínkvistar, stöngullinn fjarlægður og nálarnar hakkaðar
- 4 hvítlauksrif, pressuð
- 4 tsk Dijonsinnep
- 0,5 dl ólívuolía
- salt
- pipar
Blandið öllu saman. Látið kjötið og marineringuna í plastpoka (nuddið marineringunni á kjötið) og látið standa í ísskáp í sólarhring.
Brúnið kjötið á pönnu og setjið síðan í ofn við 150°. Eldunartíminn fer eftir bita af lambinu. Ef kjötið á að vera ljósrautt er ágætt að miða við 67° á kjöthitamæli.
Fullkomið er að hafa kramdar kartöflum sem meðlæti.
Kramdar kartöflur með parmesan og steinselju
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit