Þessi skemmtilega frétt birtist á Sigló.is, 17. september 2013, sett inn af Hrólfi Baldurssyni og rituð af Leó Ólasyni. Þessi grein á vel við í dag þar sem verið hefur fremur snjólétt á Siglufirði þar sem af er sumri 2021.

Fréttin birtist í Morgunblaðinu þann 11. júní 1949 

Eins og sést á myndinni er verið að nota jarðýtu til að ryðja snjó af götum bæjarins þann 1. júní. 

Það mundi líklega eitthvað heyrast í Siglfirðingum í dag ef þetta væri svona. Það er nánast búin að vera sól og virkilega gott veður á Sigló það sem af er sumri 2013.

Þó komu hér líklega 2 rigningardagar og strax á fyrsta sólarlausa deginum heyrði ég einhvern segja “jesús minn, ætli það eigi bara að vera rigning í ALLT sumar hérna eða hvað???”.

Líklega hefði þessi aðili sem sagði þetta bara verið lagður akút inn á geðdeild ef snjórinn hefði verið svona í bænum þann 1. júní í ár.

En allavega getum við ekki kvartað yfir sumrinu það sem af er og hugsanlega koma einhverjir nokkrir rigningardropar seinna í sumar, ja eða á morgun eða hinn. 

Hér fyrir neðan er svo fréttin úr Morgunblaðinu sem birtist 11. júní 1949.