Ekki skemma fríið með gleymsku! Er vegabréfið ekki örugglega enn í gildi?

  • Útrunnið vegabréf er alltaf ógilt vegabréf !
  • Það er EKKI hægt að framlengja útrunnið vegabréf – þú verður að fá nýtt
  • Það er EKKI hægt að „redda“ neinu þegar komið er upp á flugvöll
  • Ef þú ert að fara út fyrir EES þarf vegabréfið að gilda í a.m.k. 6 mánuði fram yfir áætlaða heimkomu.

Sótt er um vegabréf hjá Sýslumönnum

  • Hafðu með þér gamla vegabréfið / skilríki (vegabréf, nafnskírteini, ökuskírteini)
  • Mundu að greiða þér. Við viljum taka mynd af þér í nýja fína vegabréfið
  • Þú færð líka ókeypis hæðarmælingu og sýnir okkur hvað þú ert með fallega undirskrift.
  • Listi yfir umsóknarstaði innanlands má finna hér
  • Listi yfir umsóknarstaði erlendis má finna hér

Ertu að sækja um fyrir barn?

  • BÁÐIR forsjáraðilar þurfa að mæta á umsóknarstað ásamt barni þegar sótt er um vegabréf.
  • Komist aðeins annar forsjáraðili á umsóknarstað VERÐUR að fylla út eftirfarandi eyðublað með samþykki vegna útgáfu vegabréfs fyrir einstakling undir 18 ára aldri.
  • Fari forsjáraðili EINN með forsjá barns er undirskrift hans nægjanleg
  • Barnið VERÐUR að vera með þar sem tekin er mynd af því.

Það tekur ekki nema um 4 daga að framleiða vegabréfið

  • Hægt er að sækja um hraðafgreiðslu en greiða þarf aukalega fyrir það
  • Hægt er að sækja tilbúin vegabréf hjá sýslumönnum eða Þjóðskrá
  • Það er EKKI hægt að sækja tilbúin vegabréf utan afgreiðslutíma – það er engin bakvakt

Vantar þig meiri upplýsingar? Þú færð nánari upplýsingar varðandi vegabréf á vef Þjóðskrár www.skra.is