Föstudaginn 1. júní opnar ferðaþjónustan sem rekin er í Sólgarðaskóla í Fljótum og verður opið til 1. september. Rekstraraðilar og eigendur eru þau hjónin Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Alfreð Gestur Símonarson frá Barði.
Þau ráku einnig ferðaþjónustuna á Sólgörðum í fyrrasumar og höfðu umsjón með sundlauginni. Útisundlaugin á Sólgörðum er mörgum að góðu kunn og var hún tekin í notkun árið 1974. Sundlaugin hefur alltaf verið vinsæl af sveitungum, ferðafólki og nágrannabyggðum enda jafnan heit og mjög skjólsælt á staðnum.
Afgirtur leikvöllur, aðstaða til að grilla og borða nesti er til staðar. Það er mjög vinsælt hjá fjölskyldufólki að nýta sér aðstöðuna.
Kaffihús Guðrúnar frá Lundi, sem rekið er á staðnum, býður upp á vöfflur, kaffi, ís og kalda drykki. Í sumar mun Kristín Sigurrós Einarsdóttir bjóða upp á ferðir um slóðir Guðrúnar frá Lundi.
Guðrún var ein af frægustu rithöfundum landsins og var fædd og uppalin í Fljótum. Kristín Sigurrós er menntaður svæðisleiðsögumaður og hefur í nokkur ár t.d. boðið upp á dagsferðir um slóðir Guðrúnar frá Lundi.
Þau hjónin stefna einnig á að bjóða upp á viðburði, t.d. kvennahlaup, vera með hoppkastala, tónleika, sýna fótboltaleiki o.fl.
Gisting fyrir 20 manns í uppbúnum rúmum eða svefnpokapláss (plús dýnur). Hægt að leigja allt húsið fyrir t.d. ættarmót, veislur gönguhópa og hestaferðir og hólf er fyrir hesta um 400 metra frá húsinu.
Þarna í kring eru frábærir möguleikar til gönguferða og útivistar.
Hægt er að fá frekari upplýsingar á facebooksíðu: Sólgarða
Myndir: aðsendar
Frétt: Kristín Sigurjónsdóttir