Einfalt fiskgratín með sveppum

  • 700 g þorskur eða ýsa
  • 1 tsk + ½ tsk salt
  • 250 g sveppir
  • 2 msk bragðdauf olía
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 dl rjómi
  • ½ – 1 msk maizena
  • ½ – 1 grænmetisteningur
  • 1 dl rifinn ostur

Hitið ofninn í 200°. Saltið fiskinn með 1 tsk af salti og leggið hann i eldfast mót. Skerið sveppina í sneiðar og steikið í olíu í um 5 mínútur. Skalið og fínhakkið hvítlaukinn og steikið hann með sveppunum síðustu 2 mínúturnar.

Kryddið með ½ tsk af salti og hellið rjóma saman við. Látið sjóða í 2 mínútur og bætið þá maizenasterkju í sósuna. Setjið grænmetiskraft út í og látið sjóða um stund.

Hellið sveppasósunni yfir fiskinn, stráið rifnum osti yfir og bakið í miðjum ofni í um 20 mínútur.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit