Fjallabyggð leitar eftir áhugasömum aðila til þess að sjá um dúntekju á Leirutanga, Siglufirði. Skiptar skoðanir hafa verið á framkvæmd dúntekju eins og sjá má í eldri fréttum á Trölli.is.

Hljómar nokkuð undarlega að bæjarráð ætli sér “að bjóða út alla dúntekju“

Meginþættir verkefnis:

  • Girða af varpsvæði æðarfugls á Leirutanga í landi Fjallabyggðar Siglufirði.
  • Halda vargi frá svæði.
  • Annast hreinsun, umhirðu og eftirlit á varpsvæði.
  • Leggja stíg.
  • Koma upp fuglaskoðunarskýli.
  • Koma upp skilti og merkingum til að stuðla að fræðslu og til varúðar.
  • Hirða og tína dún úr hreiðrum, vinna dún og koma í nýtingu.

Þeir aðilar sem vilja taka þátt í verðkönnun vegna þessa skulu senda erindi til tæknideildar Fjallabyggðar með neðangreindum upplýsingum.

  • Nafn, kennitölu, heimilisfang, almennt símanúmer, netfang.
  • Stutt lýsing á framtíðarsýn bjóðenda hvað varðar viðgang og vöxt svæðisins.
  • Reynsla bjóðanda af sambærilegri umsjón með varpsvæði eða varpsvæðum.
  • Almennar upplýsingar um aðra, sbr. að ofan, sem að verki munu koma.
  • Upplýsingar um fyrirhugaða vinnslu og nýtingu æðardúns.
  • Upplýsingar um búnað o.fl. til að vinna verkið.

Svar við bréfi Örlygs Kristfinnssonar vegna dúntekju í Fjallabyggð

Mynd/Steingrímur Kristinsson