Plötuspilarinn verður í beinni útsendingu á FM Trölla í fyrsta skipti í dag kl. 17:00.

Oskar Brown, stjórnandi þáttarins, hefur hingað til tekið þáttinn upp og sent til FM Trölla á föstudögum, en hann er nú loksins kominn með tæknibúnað til þess að geta gert þáttinn í beinni.

Þátturinn verður sendur út frá splúnkunýju hljóðveri sem hefur hlotið nafnið Studio 7, og er staðsett í Surrey á Englandi þar sem Oskar býr.

Fylgist með Plötuspilaranum á FM Trölla á föstudögum kl. 17:00 – 18:00.

FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á www.skip.trolli.is