Fjölskyldusvið Húnaþings vestra vinnur að framtíðarsýn í þjónustu við eldri borgara í samstarfi við HVE og félag eldri borgara.

Farið verður í fundaröð með eldri borgurum til að safna saman upplýsingum um núverandi stöðu, óskir um áherslur í þjónustu ásamt umræðum um tækifæri til breytinga eða samstarfs.

Vinnufundir verða næstu miðvikudaga, 18. og 25. janúar og 1. febrúar , kl. 14-15 í Verslun Sigurðar Pálmasonar.

Við hvetjum alla eldri borgara að gefa sér tíma og mæta á þessa fundi með okkur.

Fjölskyldusvið Húnaþings vestra